"Við erum komin til að vera!"
12 grundvallarviðmið um varfærnislega þróun RAW-svæðisins * sem byggja á viðmiðum um aukna nærgætni í umgengni við borgina (formlegri ályktun fylkisþingsins í Berlín frá því í mars 1983).


1. Við undirbúning og framkvæmd endurnýjunarinnar jafnt sem varðveislu hinna sögulegu minja skal haft samráð við núverandi notendur og íbúa auk þess sem viðhalda skal iðnaðarsvip svæðisins.

2. Hagsmunir eigenda og núverandi notenda skulu fara saman að því er varðar þróunarmarkmið og sér í lagi ráðstafanir til endurnýjunar. Samningaviðræður og áætlanagerð skulu fara fram á jafnræðisgrundvelli undir stjórn hverfisstjórnarinnar.

3. Varðveita skal sérkenni RAW-svæðisins og nágrennis þess auk þess sem móta má nýjar hugmyndir um grunnvirki (s.s. orkumál og umferð) í samráði við notendur. Lagfæra skal án tafar allar alvarlegar skemmdir á húsum.

4. Tryggja verður að rótgróin starfsemi verði áfram á núverandi stað. Varfærnislegar breytingar á skipulagi svæðisins geta auk þess opnað fyrir nýja möguleika á nýtingu.

5. Gera verður langtímaleigusamninga við núverandi notendur með það að markmiði að eignamyndun eigi sér stað í þrepum og að endurnýjun einstakra bygginga verði með sjálfbærum hætti.

6. Bæta skal borgarumhverfið með því að gera stórt svæði að almenningsgarði og útivistarsvæði.

7. Tryggja skal með lagalegum hætti nýtingu svæðisins í félagsmenningarlegum tilgangi, fyrir menningarstarfsemi, íþróttir, tómstundir og útivist.

8. Gera skal aðildarrétt notenda og íbúa við heildarþróun svæðisins að varanlegum þætti í áætlanagerð.

9. Ákvarðanir um þróun svæðisins skulu teknar fyrir opnum tjöldum og skal umræða um þær fara fram á svæðinu sjálfu ef þess er kostur. Auka skal þátttöku borgaranna.

10. Til þess að samstarf um borgarskipulag skapi traust verður að vera hægt að reiða sig á samninga og ákvarðanir. Meginvettvangur fyrir samskipti verður að vera pólitíski vinnuhópurinn þar sem eigendur, notendur og hverfissamtök vinna að hugmyndum um þróun RAW-svæðisins undir stjórn hverfisstjórnarinnar.

11. Þróa skal ný form kostunar og eignarhalds. Skoða ber stefnumótun um heildarþróun svæðisins og fyrirhugaðar byggingaframkvæmdir í samhengi.

12. Tryggja skal með lagalegum hætti að þróun RAW-svæðisins fari fram samkvæmt þessum grundvallarviðmiðum eftir að áætlanagerð lýkur.